Opnun tilboða

Lyngdalsheiðarvegur, eftirlit

20.5.2008

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með gerð Lyngdalsheiðarvegar (365) milli Laugarvatns og Þingvalla.

Verkið felst í gerð nýs Lyngdalsheiðarvegar (365) á milli Þingvallavegar og Laugarvatnsvegar. Lengd útboðskaflans er um 15 km. Einnig á að gera um 1,7 km langa vegtengingu frá Lyngdalsheiðarvegi að núverandi Gjábakkavegi. Á mótum Lyngdalsheiðarvegar og Laugarvatnsvegar skal gera hringtorg, á mótum Lyngdalsheiðarvegar og Þingvallavegar skal gera T-gatnamót og á Lyngdalsheiðarvegi skal gera tvo áningarstaði.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnivals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Verkinu öllu skal að fullu lokið fyrir 15. október 2010.

 

Tilboð opnuð 20. maí 2008 og lesið upp hverjir skiluðu inn tilboðum.

 

Bjóðandi
Almenna verkfræðistofan, Reykjavík
Línuhönnun, verkfræðistofa, Reykjavík
VSÓ Ráðgjöf, Reykjavík
VST Rafteikning hf.